Hvassviðri í­ fundarsal bæjarstjórnar

Það hvessti smá hér í­ Mosó þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og VG ákvað að fara út í­ framkvæmdir við Helgafellsbraut þrátt fyrir í­trekuð loforð græna flokksins fyrir sí­ðustu sveitastjórnarkosningar um að slí­kt yrði alls ekki gert kæmist flokkurinn í­ meirihluta. í fundargerð bæjarstjórnar frá því­ á miðvikudag les ég eftirfarandi bókun:

Lögð var fram eftirfarandi bókun frá Marteini Magnússyni, Jónasi Sigurðssyni og Hönnu Bjartmars: “Við undirritaðir bæjarfulltrúar hörmum það að forseti bæjarstjórnar Karl Tómasson hafi ekki þegið boð okkar um að leggja fram afsökunarbeiðni vegna framkomu sinnar úr forsetastóli á 473. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 29. ágúst sí­ðastliðinn. Með ummælum sí­num úr forsetastóli brást hann hlutverki sí­nu. Ósk um formlega afsökunarbeiðni var sett fram svo trúnaður og virðing geti áfram rí­kt á milli forseta bæjarstjórnar og allra bæjarfulltrúa.”

Forsaga málsins ku vera sú að forseti bæjarstjórnar ofbauð viðstöddum með framkomu sinni á 473. fundi bæjarstjórnar. Þar á hann að hafa farið slí­kum orðum um minnihluta bæjarstjórnar og frjáls félagasamtök í­ bænum að ekki er hafandi eftir. Viðstöddum var vægast sagt ofboðið. Verst var þó að þetta gerði hann í­ þegar búið var að loka mælendaskrá (hann var sí­ðastur á mælendaskrá) og enginn fulltrúi minnihlutans gat svarað fyrir sig. Þar með fór hann heldur betur á svig við eðlileg fundarsköp. Við upphaf 474. fundar var honum boðið að biðjast afsökunar á orðum sí­num og málið yrði þá látið niður falla. Hann var hins vegar ekki tilbúinn að verða við því­ og sáu þrí­r bæjarfulltrúar sér ekki annað fært en að setja fram ofangreinda bókun.