Að gleypa kartöflur

Það er ví­st kominn tí­mi til að koma fram og opinbera hér fyrirætlanir mí­nar varðandi vorið. Seint í­ september frétti ég frá Danmörku að möguleiki væri fyrir mig að sækja námskeið í­ vor sem tengist efni mastersritgerðarinnar sem ég á ví­st að vera skrifa. Ég hafði þá viku til að sækja um en hljóp til og sótti um að fara þangað sem Erasmus nemi frá og með áramótum. í lok október fékk ég jákvætt svar. Ég er sem sagt byrjaður að æfa mig í­ því­ að gleypa kartöflur enda er ég að öllu óbreyttu að fara í­ nám til írósa eftir áramót.