Brí¸dre og sí¸stre

Þá eru kosningar í­ Danmörku að baki þar sem stjórnin hélt velli og Venstre, systurflokkur Framsóknarflokksins hélt velli sem stærsti flokkurinn á þingi. Talsvert hefur verið gert úr fylgistapi Radikale Venstre sem er annar systurflokkur Framsóknar. Mér finnst vera gert meira úr því­ en ástæða er til og eru nokkrar ástæður þar að baki. í fyrsta lagi fékk flokkurinn óvenju mikið fylgi 2005 út á stefnu rí­kisstjórnarinnar í­ innflytjendamálum. Flokkurinn er núna í­ sí­nu „eðlilega“ fylgi. Þá er flokkurinn með nýjan leiðtoga sem kannski hefði þurft aðeins lengri tí­ma til að kynna sig auk þess sem Naser Khader gekk úr flokknum fyrr á þessu ári og stofnaði Nýja bandalagið. Sá flokkur náði ekki þeirri stöðu sem margir höfðu spáð, þ.e. að geta haft áhrif á rí­kisstjórnarmyndun.

Sem forfallinn kosningafí­kill hef ég reynt eftir fremsta megni að fylgjast með baráttunni úr fjarlægð og held að Danir hafi gert rétt með því­ að kjósa áframhaldandi borgaralega stjórn. Stjórnarandstaða sem að mestu samanstendur af vinstri flokkum virtist ósamstí­ga og koma sér saman um fátt annað en að láta Anders Fogh fara í­ taugarnar á sér.

Lí­kt og í­ norsku sveitastjórnarkosningunum í­ haust fór áhugaverður hluti baráttunnar fram á Facebook. Þar kepptust stjórnmálamenn um að eiga sem flesta vini. í stuttu máli sigraði Anders Fogh Rasmussen (Venstre) þá baráttu með 3834 vini. Helle Thorning-Schmidt (Jafnaðarmannaflokknum) á 3741 vin, Villy Sí¸yndal (Sósí­alí­ska Þjóðarflokknum) 1755 stykki og loks á Margrethe Vestager (Radikale Venstre) 558 vini.