Bæjarmálapólití­kin

í kjallara Nordea bankans við Klemenstorg hér í­ írósum er sýning sem fjallar um lí­f ví­kinganna í­ borginni. Ég skrifaði eitthvað um þessa sýningu hér ef áhugi er á að fræðast meira hvað mér fannst um hana í­ júlí­. Nú standa menn frammi fyrir erfiðri ákvörðun. Nauðsynlegt er að gera endurbætur á sýningunni enda er hún komin til ára sinna. Moesgí¥rd safnið rekur hana en hefur ekki efni á að borga fyrir þessar endurbætur. Það stefnir því­ í­ það að sýningunni verði lokað. Þetta harma framamenn í­ ferðaþjónustunni sem benda á að sýningin er vinsæl meðal ferðamanna og skoði hana margir eftir heimsókn í­ dómkirkjuna. Ég verð eiginlega að taka undir með þeim. Sýningin fjallar um mjög áhugavert efni en það verður samt að viðurkennast að framsetningin eins og hún er í­ dag er alls ekki góð og hæfir ekki fjölsóttri sýningu í­ miðborginni.