í dag er feiti fimmtudagurinn. Við íslendingar þurfum að taka upp þennan hátíðisdag og ættum við að fá Pólverja til að hjálpa okkur við að innleiða þann sið. Þar í landi er dagurinn einnig þekktur sem „donuts day†enda reynda landsmenn þá að torga eins mörgum kleinuhringjum og mögulegt er. Líklega hefur þessi siður orðið til vegna þess að fólk þurfti að klára feiti, egg og mjólkurafurðir áður en fastan gekk í garð. Þeir sem föstuðu áttu síðan skilið að fá smá loka góðgæti í síðustu viku fyrir föstu. ítalir halda hins vegar upp á „barbecue thursday“ sem mætti mín vegna taka upp í leiðinni. Fyrir þá sem vilja innleiða fleiri daga má benda á pönnukökudaginn sem þekkist í Bretlandi og víðar. Hann köllum við Sprengidag. En þar sem ég er í mjög svo fjölþjóðlegu umhverfi núna held ég upp á alla þessa daga s.s. donuts day, fat thuesday, fetter dienstag, fastelavn, bolludag, sprengidag, öskudag o.s.frv.
Niðurstaðan af þessu er sem sagt sú að ef ykkur langar í kleinuhring eða annað sætabrauð í dag þá hafið þið afsökun. Og fyrst þið hafið afsökun þá ættuð þið að notfæra ykkur tækifærið.