Lífið hefur gert ákveðna daga merkingaþrungnari en aðra. Þann 11. febrúar 1993 fékk ég þær fréttir sem mótað hafa líf mitt hvað mest, sitjandi í fjósinu á Bjargi. Þegar ég hugsa til baka geri ég mér samt ekki almennilega grein fyrir því hvort fréttirnar sjálfar voru það versta eða hvort það var umfjöllunin í kjölfarið í samfélaginu og blöðunum. Það er hálf ótrúlegt til þess að hugsa að síðan eru liðin 15 ár. En við ráðum víst engu um dvalartíma okkar hér á Hótel jörð enda er tilvera okkar undarlegt ferðalag þar sem dauðinn krefst alls sem lífið lánaði í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur.