í fundi um ímynd Borgarness fyrir nokkrum árum var stungið upp á því að fyrirsögn færslunnar yrði notað sem slagorð bæjarins. Tæplega milljón gestir eiga viðdvöl í sjoppunum við Borgarfjarðarbrúna á hverju ári en fæstir þeirra skoða nokkuð annað í bænum. Með tilkomu Landnámssetursins var ég að vona að þessi sjoppuímynd sem Stefán Pálsson lýsti svo fyrir nokkrum árum myndi hverfa:
En nei, það virðist ganga illa að losna við áunninn stimpil. í blöðungi sem Iceland Express dreifir til allra flugfarþega sinna er þessi lýsing á Borgarnesi:
This is the first town you pass on your way up north, where it’s compulsory to stop for a pylsur (the ubiquitous Icelandic hot dog). Even if you’ve only just eaten in Reykjavik, epic adventures like this often require superhuman endurance, so best fill up on as many chemicals and saturated fats as possible while you still can.
Þar sem svo illa gengur að losna við ímyndina eiga Borgnesingar að líta á hana sem kost. Þannig ætti markmið markaðsfólks þar að vera að sjoppurnar verði fyrsta stopp í bænum í stað þess eina. Þannig er hægt að leiða fólk þaðan niður í bæ, vestur á Mýrar og inn í dali Borgarfjarðar. Það er nefnilega margt annað hægt að gera í Borgarfirði en að stoppa í sjoppu.