Mosfellingar eiga núna ofboðslega flott miðbæjartorg á milli Kaupþings og Hengilshússins þar sem hægt er að halda mikla mannfögnuði. Þar er m.a. listaverk sem reist var til minningar um fyrstu hitaveituna sem komið var á fót fyrir 100 árum. Ég næ því þó ekki hvernig arkitektunum sem hafa líklega lagt mikið upp úr því að hafa torgið sem veglegast gat sést yfir aðgengismálin. Torgið er einfaldlega ekki fyrir fólk sem á erfitt með gang eða þarf að fara um í hjólastólum. Það gera háir kantar sem umlykja torgið og allt of þröngir rampar. Ég sem starfa í næsta húsi við torgið hef því miður séð of marga hrasa um þessa háu kanta. Þá eru engir rampar niður af gangstéttinni við torgið fyrir utan gangbraut sem liggur yfir götuna í Kjarna.
í vor var á nokkrum öðrum stöðum í sveitarfélaginu settar upp hindranir á göngustíga sem gera það að verkum fólk á hjólastólum, með barnavagna eða þeir sem eiga erfitt með gang þurfa að sveigja út af göngustígunum til þess að komast leiðar sinnar. Það hefur einnig valdið slysum. Ég sem hélt að bæjaryfirvöld hér væru komin lengra í aðgengismálum en raun ber vitni.