Fyrir um hálfum mánuði síðan birti Viðskiptablaðið frétt þar sem því var spá að gengi evrunnar færi í 140 krónur fyrir árslok. Sérfræðingurinn sem rætt var við nefndi m.a. gjalddaga krónubréfa sem að falla í október. Nú, hálfum mánuði seinna virðist stefna í að evran fari í 150 krónur áður en vikan er öll. Það versta við þetta er að Seðlabankinn og ríkisstjórnin höfðu heimild til þess að taka erlent lán sem jafnvel hefði mildað fall krónunnar og styrkt trúna á fjármálakerfið en seinagangurinn og aðgerðaleysið í sumar er nú að koma landsmönnum í koll.
Annað sem ég hef tekið eftir að fólk er að velta fyrir sér er munur á gengisskráningu í fjölmiðlum og bönkunum. Þegar rætt er um gengi krónunnar er vert að hafa í huga að í fjölmiðlum er ávalt miðað við almennt gengi nema annað sé tekið fram. Þegar einstaklingurinn fer út í banka og kaupir sér evru kaupir hann hana á seðlagengi hvers banka sem er mun hærra. Þannig er almenna gengið á evrunni í sölu 146,69 krónur þegar þetta er skrifað en seðlagengið í Landsbankanum t.d. 149,91 krónur.