íratuga hefð er fyrir því að stúdentar haldi 1. desember hátíðlegan og leggi blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar. Fyrir flesta aðra er dagurinn eins og hver annar vinnudagur. Þegar ég var lítill var gefið frí í skólanum. Ekkert svoleiðis á 21. öldinni. Það er miður.
í dag var sem sagt hátíðarmálþing á vegum Stúdentaráðs, fulltrúar allra þingflokka komu, forsetinn og rektor. Einmitt vegna þess að þarna höfðu Stúdentar tækifæri til að láta í sér heyra var leiðinlegt að mætingin skyldi ekki vera meiri. Blaðamaður Morgunblaðsins taldi tólf manns í kirkjugarðinum. Ég skil það að hinn almenni stúdent sé upptekinn við próflestur og verkefnavinnu en hvar voru Stúdentaráðsliðar? Ásvona fund ætti að vera skyldumæting fyrir þá.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins á orð dagsins: „Þennan dag fyrir um níu áratugum síðan þá öðlaðist íslenska þjóðin sjálfsstæði frá Dönum“. Kannski er sagnfræðikunnátta mín á einhverjum villigötum (þá biðst ég afsökunar) en öðluðumst við ekki sjálfstæði frá Dönum 17. júní 1944?