Svona var ein fyrirsögnin í Blaðinu í gær. Skil ekki hvernig hún fór fram hjá mér. Mig minnir að það hafi verið í ökukennslunni sem okkur var sagt að þeir sem gæfu stefnuljós á Skaganum væru Borgnesingar. Reyndar er ég ekki viss um að Skagamenn séu eitthvað verri í þessu en aðrir. Þeir sem keyra á höfuðborgarsvæðinu mættu nú alveg taka sig á í stefnuljósanotkun.