Samræmd próf í grunnskólum eins og þau eru í dag eru úrelt aðferð til námsmats og ber að leita nýrra leiða til að meta getu nemenda. Grunnskólar eiga að stefna að einstaklingsmiðaðra námi en prófin falla ekki að því markmiði enda er hætta á því að skólarnir verði steyptir í sama mót. Fréttastofa íštvarpsins sagði frá því núna áðan að til skoðunar væri hjá Námsmatsstofnun að endurskoða framkvæmd prófanna. í stað núverandi prófa kæmu einstaklings miðuð munleg próf í tölvum. Ég dansa gleðidansinn þegar það fer í gegn og verð alls ekki einn um það.