Ég hef hingað til varað við því þegar ég tala um fótbolta hér og held því áfram. Þessi færsla er semsagt um fótbolta. Â
Aston Villa hjartanu mínu líður ekki vel þessa dagana og hefur eiginlega ekki gert það frá því í september. Ég bara get ekki verið sáttur þegar lið eins og Reading, Tottenham, Portsmouth og Blackburn eru fyrir ofan liðið mitt í töflunni. Ámiðvikudaginn tapaði liðið fyrir einhverju lélegu og nánast óþekktu Lundúnaliði og næstu tveir leikir eru við Liverpool liðin á Villa Park. Þeir ættu nú reyndar að vinnast.
Það eru jákvæðir punktar sem fylgja því að halda með Aston Villa. Ámeðan ég horfi á fullorðna karlmenn gráta yfir því að liðið þeirra detti út úr Meistaradeildinni bendi ég á að með því að halda með Villa er hægt að koma í veg fyrir það. Villa er einfaldlega ekki með í keppninni og við sem styðjum liðið grátum ekkert fall á meðan.