Ég fletti þremur dagblöðum í morgun en fann hvergi auglýsingu frá Samfylkingunni þar sem hún biðst afsökunar á þeim dylgjum sem komu fram í auglýsingum þeirra í gær. Líklega hefur auglýsingin ekki borist í tæka tíð áður en blöðin fóru í prentun. Flokkurinn hlýtur að birta afsökunarbeiðni á morgun, eða ætlar hann annars ekki að biðjast afsökunar á því að hafa farið með rangt mál? Eldri borgarar gerðu það þegar í ljós kom að ekkert var hæft í þeim ásökunum bornar voru á heilbrigðisráðherra.
Það vekur hins vegar athygli mína að allir flokkar eru byrjaðir að auglýsa í dagblöðum fyrir utan Framsókn og Frjálslynda. Samfylkingin var meir að segja byrjuð að auglýsa á netinu fyrir um mánuði síðan og er komin núna með auglýsingu á flettiskilti á leiðinni út úr Mosó. Kannski er meiri þörf á að auglýsa sig í dag en áður þar sem fjölmiðlar virðast hafa meiri áhuga á skoðanakönnunum og viðbrögðum við þeim en málefnalegri umræðu?