Að gefnu tilefni

Því­ miður virðist gæta þess misskilnings innan meirihluta Stúdentaráðs að Röskva og Stúdentaráð sé einn og sami hluturinn. Svo er ekki.

Því­ miður virðist gæta þess misskilnings meðal margra stúdenta að Röskva og ungliðahreyfing Samfylkiningarinnar sé einn og sami hluturinn. Svo er ví­st ekki. Tengslin eru hins vegar orðin það sterk að erfitt getur verið að greina þar á milli. Það er miður enda er trúverðugleiki Stúdentaráðs í­ húfi. Skeri Röskva ekki á þessi tengsl verður lí­tið mark takandi á orðum talsmanna Stúdentaráðs fyrir komandi kosningar. Það er það versta sem getur gerst enda er Stúdentaráð Háskóla íslands með fjölmennari hagsmunasamtökum landsins og stúdentar þurfa virkilega á því­ að halda að rödd þeirra heyrist.