Þegar ég sé skammstöfunina BTB hugsa ég ekki um Björgólf Thor Björgólfsson heldur Bifreiða- og trésmíðaverkstæði Borgarness sem reyndar lagði upp laupana fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan. En þar sem BTB er að kaupa heiminn velti ég því fyrir mér hvort hann hafi ekki skoðað BTB húsið. Það stendur meir að segja ekki langt frá pakkhúsinu þar sem langafi hans var með verslun í den. Ef einhver veit um ESJ húsið þá má viðkomandi hnippa í mig.