Stjórn SUF samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í gær.
Samband ungra framsóknarmanna harmar það ábyrgðar- og dómgreindarleysi sem ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa orðið uppvísir að í tengslum við kaup og endurbætur á nýrri Grímseyjarferju.
Hundruðum milljóna króna af almannafé hefur verið sóað með slælegri verkstjórn og ákvarðanatöku. íbyrgðin getur aðeins hvílt á herðum þess ráðherra sem réð ferðinni þegar ákvarðanirnar voru teknar.
Þá hefur fjármálaráðherra orðið uppvís að því að fara á svig við fjárreiðulög í málinu og reynir síðan að beita pólitískum bolabrögðum til að sverta Ríkisendurskoðun, sem gert hefur alvarlegar athugasemdir við þátt hans í málinu. Þessi framkoma fjármálaráðherra er engan veginn sæmandi manni í einni af helstu valdastöðum þjóðarinnar.
SUF telur að mál þetta sé með öllu dæmalaust og telur brýnt að farið sé gaumgæfilega yfir tilurð ákvarðanna og himildir eða heimildaleysi sem að baki þeim búa. í því skyni telur stjórn SUF rétt að fjárlaganefnd Alþingis hafi frumkvæði að því að Alþingi kalli eftir tafarlausri stjórnsýsluúttekt á ráðuneytum samgangna og fjármála.
SUF fordæmir sérstaklega framgöngu viðkomandi ráðherra og krefst þess að þeir axli ábyrgð sína í þessu máli.
Svo mörg voru þau orð. Ég persónulega vil síðan hvetja fjármálaráðherra og núverandi og fyrrverandi samgönguráðherra til að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 1993 sem ber það skemmtilega heiti „Stuðningur ríkisins við ferjur og flóabáta“. íhugaverð lesning sem læra hefði mátt af áður en farið var kaup á ónýtum írskum bát.