Þá get ég strikað það út af „to do“ listanum mínum að keppa á ólympíuleikum. Ég keppti í spjótkasti og boðhlaupi í dag. Það er sem sagt bæjarhátíð í gangi hér í Mosó og þar af leiðandi er hverfið mitt skreytt með gulum blöðrum, borðum, diskum og fánum. Ég horfi hins vegar öfundaraugum yfir í næstu götu enda miklu skemmtilegra að segjast eiga heima í „rauða hverfinu“ en því gula.