í dag er fólk hvatt til að klæðast rauðu til að styðja við bakið á munkunum í Myanmar. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem fólk er hvatt til að klæðast ákveðinn lit til að sýna stuðning við einhvern málstað. íslendingar hafa t.d. í nokkur ár klæðst bleiku 19. júní. í Kanada finnst hópur sem kallast Red Fridays Movement (sem þó eru ekki skipulögð samtök). Upphafskonur hans voru eiginkonur hermanna í írak og Afganistan sem vildu sýna stuðning við eiginmenn sína. Seinna fór fleira fólk sem studdi stríðið í írak í Kanada og Bandaríkjunum að klæðast rauðu á föstudögum og orðsporið fór víða. Rauðu föstudagarnir í Ameríku og rauði föstudagurinn í dag eiga það sameiginlegt að boðið berst manna á milli munnlega eða á netinu. Engar auglýsingar eru keyptar í fjölmiðlum til að ná til fleira fólks. Já börnin góð, viðfangsefni þjóðfræðinga leynast víða.