Stundum væri ég til í að vera í framhaldsskóla. Væri ég til dæmis ennþá nemandi í FVA gæti ég mætt á miðvikudagsmorgun á fyrirlestur hjá Bjarna Harðarsyni, þingmanni með meiru. Þar fjallar hann um drauga, galdra og Pamelu Anderson. Mjög athyglisverð blanda hjá honum en áhugaverð engu að síður.