Egó okkar íslendinga þarf reglulega á vítamínsprautu að halda. Eitt besta vítamínið sem við fáum er þegar útlendingar segjast vera hrifnir af íslandi. Þannig voru fjölmiðlar duglegir í gær að greina frá því að ímynd íslands væri mjög jákvæð erlendis samkvæmt skýrslu nefndar um ímynd íslands. Þegar skýrslan er lesin kemur í ljós að ímyndin erlendis er ekki neitt alltof jákvæð. í fyrsta lagi virðast fáir vita nokkuð merkilegt um ísland. Það særir auðvitað þjóðarstoltið og er vart hægt að fjalla um það í alvöru íslenskum fjölmiðlum. Þá var ísland í 19. sæti af 35 löndum í rannsókn Simon Anholt ímyndasérfræðings árið 2007 á ytri ímynd þjóða. ísland var neðst Norðurlandaþjóða og OECD þjóða. Fyrir þá sem vilja vita meira bendi ég á skýrsluna sjálfa sem er mjög áhugaverð. Þar er að finna margar góðar hugmyndir sem rétt væri að koma í framkvæmd.