Gísli Marteinn Baldursson stúdent og borgarfulltrúi með meiru fékk heldur betur skammir hér um árið er að hann skartaði BA prófi í stjórnmálafræði í Samtíðarmönnum sem hann hafði ekki. Nú titlar varformaður Frjálslynda flokksins sig sveitastjórnarmann í Skessuhorni án þess að vera það. Ég legg allavega þá merkingu í orðið sveitastjórnarmaður að það sé einstaklingur sem á sæti í sveitastjórn, ekki varamaður eða fulltrúi í nefnd. Er kannski til einhver skýring á orðinu sem ég veit ekki um?
Annars skil ég Magnús vel. Það hljómar ekki vel að titla sig varamann í sveitastjórn Akraness og varaformann Frjálslynda flokksins. Það er flottara að vera eitthvað annað og meira en bara til vara.