Þegar fara að heyrast smellir og bergmál í margara ára gömlum síma er auðvitað eðlilegast að leita nærtækra skýringa. Ég myndi benda viðkomandi á að síminn væri kominn til ára sinna. Síðan eru til menn sem hugsa stórt. Þeir myndu benda viðkomandi á að líklegast væri síminn hleraður með sömu aðferðum og notaðar voru fyrir áratugum síðan, nefnilega á tímum gömlu símstöðvanna. Mitt ráð til Sturlu er að kaupa nýjan síma og smellirnir hverfa.