Nú er ljóst að nokkur endurnýjun mun eiga sér stað í forystu Sambands ungra framsóknarmanna á Sambandsþingi eftir tæpar tvær vikur. Nokkrir af þeim sem mest áberandi hafa verið í starfinu síðustu ár hafa gefið það út að þeir gefi ekki kost á sér til endurkjörs í þau embætti sem þeir gegna í dag. Sjálfsagt bíða flestir eftir því að sjá hver mun taka við formennskunni af Jakobi Hrafnssyni. Viðkomandi mun verða 26. formaður SUF og bætast í góðan hóp þeirra sem gegnt hafa embættinu. Þannig hafa til dæmis sex af síðustu tólf formönnum SUF setið á Alþingi. Þegar þetta er skrifað hafa Bryndís Gunnlaugsdóttir og Einar Karl Birgisson gefið kost á sér til starfa.
SUF eru ein stærstu samtök ungs fólks á íslandi og fylgir því mikil ábyrgð að taka að sér forystustarf í svo stórum samtökum. Ég hef tilkynnt það til kjörnefndar að ég sé tilbúinn að taka að mér eitt af forystuhlutverkunum næstu tvö árin. Ég hef sýnt það með störfum mínum síðustu ár að áhuginn á að efla starfsemi SUF til muna er til staðar. Þá tel ég mig hafa næga reynslu til forystustarfa eftir að hafa gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í næstum áratug. Næstu tvö árin skipta gífurlega miklu máli fyrir Framsóknarflokkinn og er nauðsynlegt fyrir SUF að leggjast í mikla uppbyggingarvinnu á þessum tíma. Síðustu 70 árin hefur SUF verið vettvangur framkvæmdaglaðs ungs fólks sem ávalt hefur verið reiðubúið til þess að leggja sitt af mörkum til þess að bæta samfélagið. Ég er ekki í nokkrum vafa um að svo verði áfram næstu 70 árin.