í fréttamönnum heyrist mér að aðgerðir Saving Iceland í Helguvík hafi verið vel skipulagðar. Nú er það þannig að ég hef haft ágætan tengilið í búðunum á Hellisheiði og því fengið fréttir af því hvað þar hefur farið fram. Einmitt þess vegna get ég tjáð fréttamönnum að aðgerðirnar voru alls ekki svo vel skipulagðar. Hugmyndin um að gera „eitthvað“ kom á fimmtudagskvöldið. Hópurinn ætlaði þá að ráðast í aðgerðir á föstudaginn en hætti við vegna þess hversu illa gekk að skipuleggja „eitthvað“. Föstudagurinn var síðan notaður í frekari skipulagningu á frekar misheppnuðum aðgerðum gærdagsins.
Annars hefur mér þótt merkilegt að heyra hvað fram fer í búðunum í raun og veru. Það er allt annað að heyra það frá manneskju sem dvelur í búðunum en frá fjölmiðlum. Þó er það ekki þannig að ímyndin sem ég hafði á samtökunum hafi tekið breytingum. Fyrir áhugasama um lífið á Hellisheiði þá virðist sambúðin almennt ganga vel þó einhverjir úr hópnum hafi lent í útistöðum við álftapar sem syndir um baðsvæðið þeirra.