Ég hef áður tjáð mig um aðdáun mína á samvinnumanninum Guðsteini Einarssyni og hversu ánægður ég sé með það þegar hann skrifar í Skessuhornið. í morgun svaraði hann bloggi heilags Jóns Bjarnasonar, verndara lítilla banka og sparisjóða um Sparisjóð Mýrasýslu og er nokkuð hvass í skrifum sínum. Hann má líka vera það. Allir sem með fylgst hafa með málefnum SPM síðustu daga gera sér grein fyrir því að staða hans er mjög slæm. Jón ætti hins vegar að skamma flokksfélaga sína í Vinstrihreyfingunni grænu framboði í Borgarbyggð og ganga til liðs við Framsóknarflokkinn í gagnrýni hans á meirihluta VG, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Ég hugsa að flokksfélagar Jóns ættu að geta frætt hann um málið enda í meirihluta í sveitastjórn.
í öllu söluferlinu sem hófst í júní má gagnrýna margt. Það er til dæmis sérstakt að enginn óháður aðili var fenginn til þess að meta stöðu sjóðsins og gera tillögur að framtíðarfyrirkomulagi. Kjörnir fulltrúar í sveitastjórn fengu aldrei nein gögn í hendurnar þannig að hægt væri að byggja ákvarðanatöku á faglegum staðreyndum. Það var einungis vegna þess að fulltrúi Framsóknarflokksins í minnihluta barði það í gegn að sveitastjórn var kynnt málið en upphaflega ríkti þögn um það. Þessir fulltrúar hafa ekki getað leitað sér sérfræðiaðstoðar á eigin vegum vegna trúnaðar sem ríkti um málið þar til honum var aflétt í gær. Skrifleg beiðni um fund með endurskoðanda Sparisjóðsins hefur verið lögð fram í byggðaráði en enn hefur enginn fundur verið boðaður og þá hefur fulltrúaráð sjóðsins ekki fundað vegna stöðu sjóðsins.