Einu sinni á fjögurra ára fresti býður RÚV upp á beinar útsendingar frá ólíklegustu íþróttagreinum s.s. skotfimi, strandblaki og samhæfðu sundi. Hefðu náðst samningar við 365 líkt og í Aþenu fyrir fjórum árum væri sjálfsagt hægt að sýna frá enn fleiri keppnisgreinum. Þess í stað sjást þær í samantektarþáttunum sem eru skemmtilegir og fróðlegir. Ég hafði t.d. ekki hugmynd um að einn fremsti keppandi Kínverja í skotfimi héti Pang.
Enn hef ég þó ekki náð því hvers vegna alltaf þurfi íþróttafréttamenn að tala um amerísk körfuknattleiksliðið á ólympíuleikum „draumaliðið“. Hið eina sanna „draumalið“ tók þátt í leikunum 1992 og var skipað snillingum á borð við Michael Jordan, Scottie Pippen, Charles Barkley, Larry Bird, Patrick Ewing, David Robinson, John Stockton, Karl Malone, Clyde Drexler og Ervin „Magic“ Johnson. Liðið í dag er ekkert „draumalið“ í samanburði við liðið sem keppti í Barcelona.
Annars fannst mér óhugnanlegt að sjá kínversku hermennina ganga gæsagang með ólympíufánann á setningarathöfninni. En hver þjóð hefur víst sinn háttinn á svona löguðu. Einhverjum hefur sjálfsagt fundist þetta koma vel út.