Bændur eru ósáttir með það verð sem þeir fá frá afurðastöðunum og skil ég þá vel. Á meðan verð á afurðum hækkar ekki í takt við verð á aðföngum skerðast kjör þeirra. Það er örugglega óþægileg staða fyrir Jóhannes Sigfússon að gegna formennsku í Landssamtökum sauðfjárbænda og fara fram á að afurðastöðvar hækki verð til bænda að lágmarki um 27 prósent. Á sama tíma er Jóhannes stjórnarformaður Fjallalambs sem hækkar afurðaverðið til bænda um 18 prósent.
Annars fær Fanný hamingjuóskir dagsins. Hún er orðin forseti NCF sem eru samtök ungliðahreyfinga miðjuflokka á Norðurlöndunum fyrst íslenskra kvenna. Hennar bíða mörg erfið verkefni næsta árið en hún hefur kraftinn og viljann sem þarf til þess að til þess að leysa þau farsællega. Ég var því miður ekki vitni af kosningunni í Osló um helgina þar sem ég var staddur í Skagafirði sem var ekki síður gaman.