Ég var hvort tveggja í senn kvíðinn og spenntur þegar ég steig upp í flugvél á Keflavíkurflugvelli á Nýjársdag fyrir nákvæmlega ári síðan. Leiðinni var heitið til Kaupmannahafnar en þaðan átti ég bókað far með lest til írósa daginn eftir. í írósum hafði ég ákveðið að eyða minni annarri önn í meistaranámi mínu í þjóðfræði við Háskóla íslands. Ég hafði gengist undir þau skilyrði þegar ég fékk inngöngu í þjóðfræðina að dvelja minnst eina önn erlendis með glöðu geði. Ég tók eitt námskeið við Háskólann í írósum sumarið 2007 og kannaðist því aðeins við mig þegar ég steig út úr lestinni í miðborginni.
Hinir innfæddu segja írósa vera elstu stóru borg Skandínavíu enda hafa fornleifar frá seinni hluta 7. aldar fundist í borginni. Borgin byggist þá upp sem verslunarbær í kring um ánna sem ber hið skemmtilega nafn írósaá. Staðsetningin hefur líklega hentað vel fyrir verslun á sínum tíma þar sem borgin stendur á Jótlandi sem ólíkt Kaupmannahöfn tilheyrir meginlandi Evrópu. Þar komu því saman kaupmenn frá meginlandi Evrópu, Baltnesku löndunum, eyjum Danmerkur og víðar. í dag koma þar saman alþjóðlegir straumar hugvits.
Skólayfirvöld í írósum hafa unnið markvisst að því á síðustu árum að byggja skólann upp sem alþjóðlegan háskóla. Borgaryfirvöld hafa stutt við þessa stefnu skólans og sjá ýmsa kosti í því að verða alþjóðleg menntaborg. Háskólinn í írósum er annar stærsti háskóli Danmerkur með tæplega 35.000 nemendur og um 6.200 starfsmenn. íbúar borgarinnar og nágrennis eru um 300.000. Það er því stór hluti íbúanna tengdur skólanum á einhvern hátt.
Strax þegar ég steig út úr lestinni varð ég var við þessa áherslu skólayfirvalda að gera vel við erlenda nemendur. Á lestarstöðinni tók á móti mér stelpa úr sömu deild og ég var skráður í sem hafði fengið það hlutverk að vera leiðbeinandi minn ef ég þyrfti á því að halda. Allir skiptinemar við skólann fá sinn leiðbeinanda sem þeir geta leitað til hvenær sem er og spurt um nánast hvað sem er. Þeir eru ekki síst andlegur stuðningur og fylgjast vel með lærlingum sínum. Leiðbeinandinn minn þekktir það sjálf hvernig það er að vera skiptinemi þar sem hún er frá Póllandi en var búin að búa í írósum í tvö og hálft ár.
Ég komst fljótlega að því að ég var einstaklega heppinn með meðleigjendur. Það má einnig segja að ég hafi verið heppinn með húsnæði þó svo ýmislegt hafi verið hægt að setja út á það. Við áttum þannig eftir að eiga í smávægilegum útistöðum við leigusalann seinna meir en samanborið við aðra skiptinema þá myndi ég segja að ég hafi verið heppinn. Húsið var í Risskov fyrir þá sem þekkja til írósa. Þeir sem leigja í gegn um Háskólann eins og ég gerði eiga það á hættu að fá úthlutað húsnæði í hverfum sem lélegt orð fer af.
Ég hafði því einn mánuð til þess að koma mér fyrir áður en skólinn byrjaði að fullri alvöru. Þann tíma hafði ég ákveðið að nýta til þess að komast betur inn í dönskuna. Háskólinn býður öllum skiptinemum upp á þriggja vikna námskeið sem kallast „Denmark Today“ í ágúst og janúar ár hvert. Er það ekki síst ætlað til þess að kynna nemunum tungumálið og danska menningu. Þegar 200 skiptinemar koma saman gefur það auga leið að ekki eru allir jafn færir í dönskunni. Hópnum var því á fyrsta degi getuskipt en það varð svo að þeir sem lentu á mínu stigi urðu jafnframt mínir bestu vinir þó við legðum stund á ólíkar námsgreinar. Eins og svo oft gerist með skiptinema víðast hvar að mér skilst halda þeir þétt hópinn. Þannig var það einnig í írósum.
Þegar vorönnin hófst formlega þann 1. febrúar komst ég loksins í tíma í mínu fagi sem var „nordisk mytologi“ eða norræn goðafræði. ístæðan fyrir því að ég valdi írósa á sínum tíma var fyrst og fremst sú að í þessari deild var boðið upp á námskeið þar sem m.a. var fjallað um norræna trú á seinni öldum. Það féll vel að MA ritgerðinni minni og mun betur en handritalestur í Osló svo dæmi sé tekið um aðra staði sem stóðu mér til boða. Ég kunni vel við þann hóp samnemenda minna sem ég kynntist úti. Rétt eins og í þjóðfræðinni hér á landi er þetta fámennur hópur en afskaplega samheldinn. Ef hægt er að setja út á eitthvað þá fannst mér skólinn stundum mega gera meiri kröfur til nemendanna.
Ég hreifst mjög af írósum þegar ég fór þangað í fyrsta skipti. Ég varð enn hrifnari þegar ég kynntist borginni betur. Það var samt ekki síst félagsskapurinn sem gerði það að verkum að mér leið svo vel. Þannig gæti verið skrýtið næst þegar ég fer þangað að vera í öðrum félagsskap.Þegar ég lít til baka ári seinna sé ég betur hversu gefandi, félagslega þroskandi og skemmtilegur þessir mánuðir voru. Ég mæli svo sannarlega með því við hvern sem er að fara í skiptinám og kynnast fleiri menningarheimum, jafnvel þó ekki sé farið lengra en til Danmerkur.