Dagurinn hófst á norrænu málþingi, mexíkóskur matur í hádeginu, þá japanskt festival, fundur um íslenskan menningararf, landsleikur í handbolta og loks amerísk samloka með frönskum kartöflum. Þegar heim var komið ómuðu eurovision lög úr stofunni. Ég er ekki frá því að við eigum að senda öll lögin sem ég heyrði í kvöld út og geyma þau þar. Vonandi er eitthvað skárra í keppninni sem ég hef ekki heyrt.