Þessi skrif Kiddu eru þörf lesning fyrir áhugamenn um VG og ílafosskvosina. Sérstaklega dreg ég út eftirfarandi kafla:
Hann [Karl Tómasson, oddviti VG í bæjarstjórn Mosfellsbæjar] taldi það meðal annars fram sem rök að ef öll framkvæmdin yrði sett í umhverfismat eins og stungið var upp á yrði það töf og mikill kostnaður fyrir bæjarfélagið. Það vakti áhuga minn að talsmaður umhverfisverndarflokks skuli ekki verðleggja hærra  náttúruna og ómetanlega perlu bæjarins því í huga margra er ílafosskvos hjarta bæjarfélagsins.
í–ssur álíka góðan sprett á sínu bloggi:
Ámeðan eru það hinir iðjagrænu vinir okkar í VG að taka á sig til skiptis hami Dr. Jekylls og Mr. Hyde í verndarmálum. Meðan Dr. Jekyll með glampandi skalla ættaðan af Gunnarsstöðum norður berst einsog vitlaus maður fyrir náttúruvernd á Alþingi er hann með Mr. Hyde með umhverfistagl lafandi úr hnakkagrófinni í stóli forseta bæjarstjórnar í Mosfellssveit. Þar hamast Mr. Hyde Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs einsog laminn þræll íhaldsins sem hann situr með í meirihluta í Mosfellsbæ og hafnar á báðar hendur sanngjörnum óskum um umhverfismat á veglagningu um viðkvæmustu svæði sveitarinnar á bökkum Varmár.
Oddviti VG í sveitinni er semsagt orðinn umskiptingur og virðist sérstakt kappsmála að eyðuleggja umhverfisperluna sem Varmárbakkar eru og ég flutti um innblásna ræðu í Hlégarði 1994 hjá náttúruverndarsamtökum í sveitinni. Nöturlega var að lesa um að oddviti VG hefði hímt bak við gluggatjöld meðan fólkið mótmælti og þorði ekki að láta sjá sig. Er semsagt nóg að rífa kjaft á Alþingi – en leyfa flokknum í meirihlutanum í Mosfellsbæ að fremja hernað gegn landinu?