Mér finnst það vera eitthvað svo íslenskt að setja upp kaffihús með tertum og kökum sérstaklega fyrir sýningu um heilsu og heilbrigt líferni. Bakararnir geta örugglega bjargað einhverjum gestum frá þessu heilsubótarbölinu.
Annað sem mér finnst vera íslenskt en sorglegra er þegar KSí krefst þess að leikur í enska boltanum sé ekki sýndur beint vegna þess að heil umferð í karlaboltanum hér á landi fer fram á sama tíma. Það má hins vegar sýna leik beint í sömu deild þegar stærsti leikur ársins í kvennaboltanum fer fram. KSí ætti að fara hugsa sinn gang í jafnréttismálum.