Leikdeild Samfylkingarinn í Hafnarfirði sýnir í dag gamanleikinn íbúalýðræði í Hafnarfirði. Leikritið gerist á okkar dögum þegar „of pólitískur flokkur“ treystir sér ekki til að taka opinbera afstöðu í umdeildu máli. Til þess að fría sig ábyrgð á ákvörðuninni setur bæjarstjórnin ákvörðunina í hendur íbúanna. Fyrirtæki í bænum er stillt upp við vegg og það látið berjast fyrir lífi sínu. íbúarnir hafa þó kannski ekki lokaorðið því þegar líður á leikritið kemur formaður „of pólitíska flokksins“ og segist ætla beita sér gegn ákvörðun meirihluta bæjarbúa ef kosningarnar fara ekki eins og hún vill.
Óhætt er að segja að fáar sýningar á síðustu árum hafi fengið jafn mikið umtal í fjölmiðlum og þessi. Þess má geta að formaður „of pólitíska flokksins“ lék aðalhlutverkið í leikritinu Flugvöllinn burt sem sýnt var í Reykjavík fyrir nokkrum árum en aðsókn á þá sýningu olli nokrum vonbrigðum. Síðan þá hefur formaðurinn sett upp einleiki á nokkrum stöðum á landsbyggðinni sem fallið hafa í grýttan jarðveg, t.d. í Borgarnesi þar sem hún sýndi Borgarnesræðan: Davíð níðist á einkafyrirtæki og í Reykjanesbæ með verkið Samfylkingin: Þjóðin treystir ekki þingflokknum.