Eins og fleiri þurfti ég að athuga hversu mikla möguleika ég ætti á dönskum ríkisborgararétti og svaraði þessu krossaprófi á vef Jyllands-Posten. 22% dana á aldrinum 18-25 ára falla á prófinu sem lagt er fyrir innflytjendur ætli þeir að sækja um danskan ríkisborgararétt. Til þess að standast prófið þarf maður að svara 28 spurningum rétt. Þar sem ég svaraði 30 af 40 spurningum án þess að skilja allar spurningarnar er ég víst skápabauni.