Ég er kominn á barmmerki ásamt öðru framsóknarfólki. Þeir sem vilja fá barmmerki með mér geta fengið svoleiðis á Kaffi Kind, Laugavegi 33. Um er að ræða einstakan safngrip sem framleiddur er í takmörkuðu upplagi. ÁKaffi Kind er ég líka mjög oft í eigin persónu frá 10 á morgnanna fram á kvöld. Auk barmmerkja er næring í boði á staðnum, meistaradeildin og annað sjónvarpsefni, tölvur og símar. Mæli sérstaklega með staðgóðum hádegismat fyrir námsmenn í próflestri og aðra hungraða. ÁLaugaveginum er alltaf til kaffi og með því. Ég hvet ykkur til að kíkja við.
P.S. Eggerts-handklæðin og Eggerts-dúkkurnar koma í næstu viku.