Framhaldsskóli í­ Mosfellsbæ

Eins og staðan er í­ dag er Mosfellsbær fjölmennasta sveitarfélag landsins sem ekki hefur framhaldsskóla. Vonandi verður ekki langt að bí­ða þar til slí­kur skóli rí­si hér í­ miðbænum. Undirbúningurinn er kominn á fullt og er tí­minn þessa dagana notaður til þess að funda með fulltrúum stjórnmálaflokkanna í­ bænum. Áfundunum skila flokkarnir inn sí­num hugmyndum um stefnu skólans, mögulegar námsleiðir og staðsetningu. Það var áhugavert að heyra eftir fundinn með okkur Framsóknarmönnum í­ gær hversu samstí­ga flokkarnir virðast vera eftir að hafa unnið tillögurnar hver í­ sí­nu horni. Við gætum séð skóla á svæðinu sem er einstakur á landsví­su hvað varðar kennsluhætti og býður upp á spennandi námsframboð sem ekki er í­ boði annarsstaðar, byggt á styrkleikum Mosfellssveitar félagslega og atvinnulega, auðlindum og sögu.