íslenskur fiskur er sá besti í heimi og ég er mjög farinn að sakna þess að fá ekki alvöru fisk. Ég hef gert nokkrar heiðarlegar tilraunir til þess að borða danskan fisk en í stuttu máli er fiskurinn hér nánast óætur sé maður góðu vanur. Það er varla hægt að segja að hann sé nýtur í bollur. Væri ég í Köben gæti ég skroppið út í fiskbúð og keypt íslenskan fisk en ég bý ekki svo vel. Til þess að vera sanngjarn þá hef ég fengið ágætis lax og síld hér en líklega verð ég að bíða í rúman mánuð eftir góðum þorsk.