Ég vek athygli á þessu máli. Á íslandi eru hundruð einstaklinga skilgreindir sem transgender og hafa nokkrir tugir gengist undir aðgerð til þess að leiðrétta kyn sitt. Transgender fólk verður fyrir miklum fordómum í samfélaginu og eigum við öll að standa þétt við hlið þessa hóps í baráttunni gegn aðkasti, fordómum og fáfræði.
Alþingi þarf sem fyrst að samþykkja heilstæða löggjöf um réttindi hópsins líkt og þing nágrannalanda okkar hafa gert. í dag er t.d. furðulegt að einstaklingur sem leitar leiðréttingar á kyni sínu fær ekki að skipta um nafn fyrr en upphaflegir kynkirtlar hafa verið fjarlægðir og líkamlegu breytingaferli er lokið. Engu máli skiptir þó sami einstaklingur hafi lifað í því kyngervi sem hann telur vera sitt í nokkur ár eða áratugi.