Aðalstuðningsaðilar ensku fótboltaklúbbanna virðast annað hvort vera farnir á hausinn eða róa lífróður. XL Airways sem auglýsti á búningum West Ham fór t.d. á hausinn í síðustu viku og nú óttast margir að tryggingafélagið AIG, aðalstuðningsaðili Man Utd sé að rúlla yfir um. Annars sá ég engann í United treyju í ræktinni í dag sem er nokkuð sérstakt þar sem aðdáendur þess klúbbs eru yfirleitt ófeimnir við að flagga stuðningi sínum. í†tli það sé einhver sérstök ástæða fyrir því að menn klæddust ekki treyjunum í dag?