Þingflokkur framsóknarmanna lagði fram frumvarp til laga um greiðsluaðlögun fyrir viku síðan. Sjálfstæðismenn ætla að leggja fram svipað frumvarp þegar þing kemur saman sem og ríkisstjórnarflokkarnir. Málið ætti því að fljúga í gegn um þingið og vera orðið að lögum fljótlega. Það er hið besta mál þar sem lögunum er ætlað að hjálpa einstaklingum sem eiga í alvarlegum greiðsluerfiðleikum og það fjölgar í þeim hóp á hverjum degi. Þess má geta að ísland er í dag eina norræna ríkið sem ekki hefur slík lög.