Það má finna fyrir því á kvöldin að það er tekið að hausta. Þar af leiðandi styttist í að dvöl minni í sveitinn ljúki, í bili a.m.k. Ég mun hætta í bankanum föstudaginn 1. september. Við tekur skólabekkurinn, ekki alveg sá sami og síðustu tvö ár en nánast. Ég tek engan þjóðfræðikúrs í haust heldur tvö námsskeið í sagnfræði og eitt í almennri menningarmiðlun. Skrýtið að vera nánast búinn með þjóðfræðina. Veit það samt sem áður að ég mun umgangast einhverja þjóðfræðinema í þessum námsskeiðum og svo verður Þjóðbrók vonandi líflegri en áður hefur þekkst.
Ég náði að vinna slatta í Gotlandsverkefninu um helgina. Búinn að hreinskrifa dagbókina og pikka upp viðtalið. Skýrslan sjálf er á góðu róli. Stefni að því að skila henni í yfirlestur um helgina. Þá tekur við Slæðingsgreinin sem setið hefur á hakanum í sumar.