Hér heima voru prófkjör um helgina. Borgnesingurinn Gulli vann hjá Sjöllum í Reykjavík. Konur fengu mjög lélega útkomu. Aðeins þrjár konur í 10 efstu sætunum! Ég er orðinn leiður á því að heyra að Sjálfstæðismenn velji bara hæfasta fólkíð, svo er ekki. í Norðvesturkjördæmi bíður Sjálfstæðismanna erfitt verkefni. Allir þrír þingmenn kjördæmisins ætla að halda áfram (sem eru allir karlar). Þeir sem oftast hafa verið nefndir í tvö næstu sæti eru líka karlar. Held að Sjálfstæðisflokkurinn eigi möguleika á að halda sínum þremur þingmönnum en varla að þeir bæti við.
Hjá Samfylkingunni í Norðvesturkjördæmi kom sigur Guðbjarts Hannessonar mér ekki á óvart. Hann er mjög vinsæll og á örugglega eftir að reynast flokknum vel. Samfylkingin felldi hins vegar sitjandi þingmann sem kom mér ekki á óvart en virðist hafa komið höfuðborgarbúum á óvart. Ég held að afstaða í–nnu til landbúnaðarmála hafi á endanum orðið henni til falls og það hversu lítið áberandi hún hefur verið á kjörtímabilinu. Nú er bara spurning hvort Herdís nái öðru sætinu hjá Framsókn, annars er útlit fyrir að engin kona verði á þingi í Norðvesturkjördæmi eftir næstu kosningar.