Uppgjör

Ég nenni ekki að skrifa annál ársins 2006. Það var bara nokkuð gott og endaði með fí­nu skaupi og fullt af sprengjum. Ég sprengdi ekki neitt, finnst það ekkert sérstakt en alltaf finnst mér jafn fyndið að sjá fullorðna karlmenn breytast í­ börn á gamlárskvöld. Sá ekki mikinn mun á gleði 10 ára barnanna og 40 ára barnanna þegar kveikiþræðirnir fuðruð upp í­ gær.

Sí­ðustu daga hafa völvuspár birst hver af annarri. Fjölmiðlar eru lí­ka duglegir við að fara yfir spárnar sí­ðan í­ fyrra og tala um hversu sannpáar völvurnar eru. Þegar þeir gera það mættu þeir lí­ka skoða það sem rættist ekki. Það varð t.d. ekki niðurskurður í­ heilbrigðiskerfinu, Aron Pálmi kom ekki til landsins á árinu, Sjálfstæðisflokkurinn náði ekki hreinum meirihluta í­ Reykjaví­k, Dagur B. og Björn Bjarnason hættu ekki í­ stjórnmálum, meirihlutinn á ísafirði féll ekki, Halldór ísgrí­msson hélt ekki örugglega utan um rí­kisstjórnina út árið, Sigrí­ður Anna Þórðardóttir hélt ekki áfram sem umhverfisráðherra, það urðu breytingar hjá Jóní­nu Bjartmarz, DV gekk ekki „einstaklega“ vel á árinu, Sálin hans Jóns mí­ns meikaði það ekki í­ Evrópu, íslenska landsliðinu í­ fótbolta gekk ekki vel og KR vann ekki bikar í­ fótboltanum. Hvernig ætli árið hjá nýju völvunni byrji? Hún segir m.a.: „Ég sé ekki að þeir þori að taka Saddam af lí­fi strax og mér finnst málaferlin gegn honum halda áfram út árið.“ Völvurnar eru samt skemmtilegar, ekki misskilja mig.