Menntamálaráðherra gerði vel í fyrradag þegar hún skrifaði undir samning við Háskóla íslands sem gerir honum kleift að stór auka rannsóknir og bæta kennslu. Samningurinn er forsenda þess að skólinn komist í hóp 500 bestu háskóla heims. Leiðinlegri þóttu mér viðbrögð kennara og starfsmanna annarra háskóla sem tjáð sig hafa í fjölmiðlum. í stað þess að samfagna með Hí og líta á þau tækifæri sem nú gefast gýs upp öfund sem er engum til góðs.
Háskóli íslands er stærsti háskóli landsins og sá skóli sem mesta möguleika á að komast inn á áðurnefndan topp 500 lista. Nái skólinn því markmiði sínu mun það koma til með að styrkja aðra háskóla hérlendis með öflugri rannsóknum og betur menntuðum kennurum sem leiðir til betri kennslu o.s.frv.
íhugafólki um hagsmunabaráttu stúdenta bendi ég á þessa færslu fyrrverandi formanns stúdentaráðs. Stórfurðulegt mál.