Ég er búinn að finna nýjan hlut til að nöldra yfir, þ.e. auðkennislykillinn sem bankinn minn sendi mér í dag. Ég var á móti honum síðasta sumar og ætla að leyfa mér að vera á móti honum í dag. í–rugglega kemur þetta til með að auka öryggi á netinu fyrir einhverja en fyrir þá sem eru alltaf að týna svona smáhlutum þá er þetta asnalegt tæki. Nú býð ég eftir því að Velvakandi fyllist af svipuðu nöldri og flökkusögur um skaðsemi þessa tækis fari af stað.