Röddin í útvarpinu talaði um að dominos kubba í dag. Aldrei heyrt um slíka kubba en hins vegar hef ég hringt í pizzastaði með þessu nafni. í tölvukerfinu þar heiti ég víst Suf. Að því komst ég í haust þegar ég sótti pizzu á Höfðabakka. Þar var ég spurður hvert föðurnafnið mitt væri. Ég útskýrði fyrir stelpunni að ég héti ekki Suf, allavega hvergi annars staðar en í tölvukerfinu hjá þeim. í Spönginni í síðustu viku var ég síðan spurður hvort ég héti virkilega Suf? Séu fleiri í vafa þá heiti ég ekki Suf.