Ég vildi á sínum tíma sjá RÚV verða að sjálfseignarstofnun en það varð víst ekki að veruleika. Þess í stað var stofnuninni RÚV breytt í opinbera hlutafélagið RÚV. Því fylgdu hærri laun fyrir lykilstarfsmenn, launaleynd, einhverjir kostir og fleiri gallar eins og gengur. Einn gallanna er tvímælalaust sá að fundargerðir stjórnar félagsins eru ekki aðgengilegar almenningi á netinu. Á meðan RÚV var ríkisstofnun birtust fundargerðir útvarpsráðs alltaf á netinu. Þannig gat almenningur fylgst með því sem var á döfinni hjá fjölmiðlaveldinu sem var í eigu hans. Það er af sem áður var.