Það er aldeilis hvað við íslendingar eigum flottan forseta. Forsetinn okkar virðist vera nógu flottur sýningargripur til þess að fá að vera við setningarathöfn Ólypmíuleikanna sem hófust í dag. Ekki þykja Kínverjum allir forsetar vera jafn æðislegir. Robert Mugabe hefur t.d. verið bannað að vera við setningarathöfnina og fær hann þær skýringar að pólitískar ástæður liggi að baki. Þessi frétt fer heldur hljótt á meðan forsvarsmenn ólympíuhreyfingarinnar og Kínverjar halda því fram að leikarnir séu algjörlega ópólitískir.