Stíga á kúplinguna og bremsuna um leið og starta. Flókið mál. Ég sest venjulega upp í bíl, stíg á bremsuna og starta. Ég á nefnilega sjálfskiptan eðalvagn og keyri að öllu jöfnu ekki beinskipta bíla. Eftir að hafa keyrt eða réttara sagt reynt að keyra slíkan grip í dag er ég ákveðinn í að halda mig frá svoleiðis dóti framvegis. Ég veit ekki hvort heyrðist hærra í andskotans bílnum þegar ég reyndi að starta honum eins og hann væri sjálfskiptur á miðri Hverfisgötunni eða farþeganum sem hló af öllu saman. Ég mun aldrei kaupa mér beinskiptan bíl.