Þegar ég var yngri taldi ég árin þar til ég myndi fermast enda trúði ég því þá að það yrði einhver stærsti atburður lífsins. í minningunni er fermingin ekki stærri en svo að ég hef ekki talið árin frá því að ég fermdist. í raun hefði ekki vitað að ég ætti 10 ára fermingarafmæli í ár nema vegna þess að Halla minnti okkur bekkjarsystkinin á það. Á þessum 10 árum hefur margt breyst eins og gerist og gengur. Ég áttaði mig samt ekki á því fyrr en í gær að eftir í Borgarnesi eru aðeins búsett þrjú af bekkjarsystkinum mínum. Tvö af þremur eru líklega að flytja þaðan í sumar. Af góðum árgangi Borgnesinga verður þá líklega aðeins einn búsettur þar í haust.